Svínahamborgar hryggur með öllu tilheyrandi

Það átti nú ekki að líða svona langt á milli bloggfærslna, en það er búið að vera afskaplega mikið að gera hjá mér undanfarið og það bara gafst ekki tími til að sinna blogginu. Ég er samt búin að vera dugleg að elda og prófa nýjar uppskriftir og það er margt spennandi sem bíður eftir að komast á bloggið. Meðal þess sem ég hef eldað undanfarið er svínahamborgarhryggur með rauðvíns-kóksósu, máltíð sem sló svo rækilega í gegn hjá okkur að við erum enn að ná okkur niður úr hamingjukastinu sem þessi matur setti af stað. Þar sem páskarnir eru rétt handan við hornið fannst mér upplagt að gefa uppskriftina núna, enda mikill hátíðamatur sem fellur í kramið hjá öllum.

Svínahamborgarhryggur með öllu tilheyrandi

  • Svínahamborgarhryggur, þyngd eftir fjölda matargesta
  • 3 lítrar vatn
  • 1 dl tómatsósa
  • 1 dl púðursykur
  • 1 dl rjómi
  • 1 dl Dijon sinnep
  • 3 msk grófkorna sinnep
  • Ananassneiðar

Hitið ofn í 150°. Setjið 3 lítra af vatni í ofnskúffu og setjið ofnskúffuna neðst í ofninn. Sjóðið saman tómatsósu, púðursykur, Dijon sinnep, rjóma og grófkorna sinnep. Penslið hrygginn með þessu og setjið hann á ofngrind og ofngrindina inn í ofn. Eldið í 2 klukkustundir en penslið hrygginn með gljáanum nokkrum sinnum á þessum tíma. Þegar 2 klukkutímar eru liðnir er hitinn á ofninum hækkaður í 190° og ananassneiðum raðað yfir hrygginn. Penslið yfir ananasinn með gljáanum. Passið að hafa 3 msk eftir af gljáanum fyrir sósuna. Eldið hrygginn í 25 mínútur til viðbótar. Látið hann aðeins standa áður en hann er skorinn.

Rauðvínssósa:

  • Allt soðið úr ofnskúffunni
  • 2 dl rauðvín
  • 2.5 dl kók
  • 3 msk gljái
  • 2 bréf rauðvínssósa frá TORO
  • 2 svínateningar
  • 2 nautateningar
  • ½ líter rjómi
  • 3 tsk rauð sulta
  • Salt

Setjið soðið, rauðvín, kók og gljáa í stóran pott og látið suðuna koma upp. Látið þetta sjóða niður í 1-2 klukkutíma, eða þangað til vökvinn hefur minnkað um helming. Bætið teningum og rauðvínssósu dufti saman við og látið þetta malla í 15 mínútur. Setjið rjómann saman við þetta og látið malla í aðrar fimmtán mínútur. Smakkið til með salti og sultu.

Sykurbrúnaðar kartöflur:

  • 1 kg soðnar og skrældar kartöflur, passið að hafa þær þurrar
  • 50 g smjör
  • 2 dl púðursykur
  • 2 msk rjómi
  • Salt

Bræðið smjörið og púðursykurinn saman á pönnu á vægum hita. Þegar sykurinn er alveg bráðnaður er 2 msk af rjóma og salt eftir smekk sett á pönnuna. Látið þetta malla í nokkrar mínútur. Bætið næst kartöflunum á pönnuna. Látið malla þar til kartöflurnar hafa hitnað í gegn.

*Færslan er unnin í samstarfi við John Lindsay

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir