Fyrir skömmu útbjó ég nokkra rétti fyrir matarhornið hjá Morgunblaðinu þegar HM í handbolta stóð yfir. Ég bjó meðal annars til tortilla rúllur með döðlum og ofnbakaða ídýfu með beikoni, chili sultu, cheddar osti og vorlauk. Ég fattaði svo allt í einu eftir að ég steingleymdi að setja ídýfuna inn á bloggið, svo hér kemur hún. Þessi ídýfa er alveg brjálæðislega góð og sló rækilega í gegn hjá öllum sem smökkuðu hana. Hún passar vel með snittubrauði, Ritz kexi, Doritos og í rauninni bara með hverju sem er. Prófið!
Ofnbökuð ídýfa með chili sultu:
- 250 g rjómaostur
- 2.5 bolli rifinn cheddar ostur
- 300 g chili sulta (ég notaði frá Stonefire)
- 2 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar og græni hlutinn geymdur
- 4 hvítlauksrif, fínhökkuð
- 8 sneiðar mjög stökkt beikon, hakkað
Hitið ofn í 175°. Blandið öllu hráefninu vel saman og setjið í smurt eldfast mót eða smurða steypujárnspönnu. Eldið í ofni í 20-30 mínútur. Hitið nokkrar msk af chili sultu í örbylgjuofni. Þegar ídýfan er tilbúin er hitaðri chili sultu og græna partinum af vorlauknum dreift yfir ídýfuna. Berið fram með ritz kexi, tortilla flögum, snittubrauði eða hverju því sem hugurinn girnist.
