Um helgina bjó ég til steikarlokur með karamelluseruðum lauk og póstaði í story á Instagram. Ég fékk svo mikið af fyrirspurnum um réttinn að ég ákvað að setja steikarlokuna hingað inn þó það sé kannski ekki um mikla uppskrift að ræða, enda er alltaf best að gera steikarlokur eftir smekk og tilfinningu. Það sem ég birti hér er því bara viðmið, það er frjálst að breyta til eftir smekk og stuði.
Steikarloka með karamelluseruðum lauk (uppskrift fyrir tvo):
- 350 g nautakjöt, kryddað og eldað eftir smekk (ég notaði nautalund)
- Baguette, skorið í tvennt og þversum (ég tók endana af)
- Rifinn ostur eftir smekk (ég notaði sterkan gouda)
- 2 laukar, skornir í þunnar sneiðar
- 1 msk smjör
- 1/2 msk ólífuolía
- 1 msk púðursykur
- Salt og pipar
- 4 hvítlauksrif, fínhökkuð
- 150 g sveppir, sneiddir
- Bernaise sósa eftir smekk
Bræðið smjör og ólífuolíu á mjög vægum hita á pönnu. Bætið lauk á pönnuna og saltið hann eftir smekk. Látið laukinn malla á pönnunni í klukkutíma en hrærið í honum á 10 mínútna fresti. Þegar klukkutími er liðinn er púðursykur og pipar sett á pönnuna og blandað vel saman við laukinn. Látið malla í 15 mínútur til viðbótar og hrærið þá hvítlauk saman við. Takið laukinn af pönnunni og setjið til hliðar. Bætið smá ólífuolíu á pönnuna og steikið sveppina. Smyrjið neðri hlutann af baguette brauðunum með karamelluseruðum lauk og raðið sveppum yfir. Gratínerið með rifnum osti eftir smekk. Bakið við 200° þar til osturinn er bráðnaður og kominn með fallegan lit. Raðið nautakjöti og bernaise sósu eftir smekk yfir brauðin og endið á að mylja ógrynni af svörtum pipar yfir. Berið fram með frönskum kartöflum og meiri bernaise sósu.