Ég elska súpur og þá sérstaklega á haustin þegar það er farið að kólna og dimma. Það er eitthvað svo hlýlegt og notalegt við súpur, bæði að standa yfir þeim og smakka þær til, sem og að bera þær fram. Gott brauð setur svo endanlega punktinn yfir i-ið. Þessa tómatsúpu eldaði ég í fyrsta sinn fyrir nokkrum vikum og okkur fannst hún svo góð að ég er búin að elda hana nokkrum sinnum á stuttum tíma, alltaf við mikla lukku. Með grilluðum ostasamlokum úr súrdeigsbrauði varð máltíðin alveg hreint dásamleg. Prófið!
Tómatsúpa (uppskriftin er fyrir tvo):
- 1.5 msk smjör
- 1 laukur, hakkaður
- 1 sóló hvítlaukur, pressaður eða fínhakkaður
- Smá rauðar chili flögur
- 1 dós niðursoðnir hakkaðir tómatar
- 1 lítil dós tómatpúrra
- 2 dl kjúklingasoð eða vatn
- 1/2 grænmetisteningur
- 1/2 kjúklingateningur
- 1 dl rjómi
- Salt og pipar eftir smekk
- Smá þeyttur rjómi (má sleppa)
- Steinselja, fínhökkuð (má sleppa)
Bræðið smjörið í potti á miðlungsháum hita. Steikið laukinn þangað til glær, það tekur um 6 mínútur. Bætið hvítlauknum og chili flögum saman við og steikið í 1 mínútu til viðbótar. Bætið tómötum, tómatpúrru, kjúklingasoði/vatni, grænmetistening og kjúklingatening saman við og látið suðuna koma upp. Látið súpuna malla í 15 mínútur. Að þeim liðnum er súpan sett í blandara og mixuð þangað til alveg slétt (það er upplagt að græja grillaðar ostasamlokur á meðan). Færið súpuna aftur í pottinn og látið hana hitna aftur – athugið, að hún skvettist út um allt, þannig að setjið lok á pottinn og látið hana hitna upp á vægum hita. Þegar súpan er orðin passlega heit er hún tekin af hitanum og rjómanum hrært saman við hana. Berið strax fram með smá þeyttum rjóma, smátt saxaðri steinselju og grilluðum ostasamlokum með bragðmiklum osti.
Ég geri samlokurnar alltaf úr súrdeigsbrauði og nota ýmist cheddar ost, sterkan gouda og/eða maribo ost í þær. Þá smyr ég samlokurnar að utan með miklu smjöri og steiki á pönnu á miðlungsháum hita þar til osturinn er bráðnaður og samlokurnar komnar með fallegan lit.


