Heimsins bestu fiskibollur og karrísósa

Heimagerðar fiskibollur bornar fram með karrísósu og hrísgrjónum þykir mér algjör herramannsmatur. Þegar ég var yngri keypti ég fiskibollurnar tilbúnar en eftir að ég fór að gera þær sjálf vil ég hreinlega ekki sjá keyptar fiskibollur og skil ekk hversvegna mér þóttu þær góðar. Eftir að ég fékk mér hakkavél til þess að setja á KitchenAid hrærivélina mína hef ég ekki keypt fiskhakk, þar sem mér þykir bæði betra og skemmtilegra að gera hakkið sjálf (enda er KitchenAid hakkarinn mjög skemmtilegt apparat), en að sjálfsögðu má alveg kaupa hakkið úti í búð eða nota matvinnsluvél til að hakka fiskinn. Þessa uppskrift hef ég sennilega fengið frá mömmu á sínum tíma en ég hef breytt henni mikið í gegnum árin, svo mikið að það er hreinlega um allt aðra uppskrift að ræða. Ekki vera hrædd við kryddmagnið, þessi krydd fara æðislega vel saman og gefa einstaklega gott bragð af bollunum. Uppskriftin af karrísósunni er ekki heilög, ef ég á bara rjóma, þá nota ég bara rjóma, ef ég á bara mjólk þá nota ég hana, o.s.frv, útkoman er alltaf góð!

Heimsins bestu fiskibollur

  • 1.2 kg fiskhakk (ég nota 600 g af þorsk og 600 g af ýsu)
  • 2 egg
  • 4 msk kartöflumjöl
  • 4 msk hveiti
  • 2 laukar, mjög smátt saxaðir
  • 6 hvítlauksrif, söxuð mjög smátt
  • 1-2 dl mjólk
  • 1 grænmetisteningur (eða 1 msk grænmetiskraftur)
  • 2 tsk Aromat
  • 1 tsk cayenne pipar
  • 3 tsk dill
  • 1 tsk ítölsk hvítlauksblanda
  • 1 tsk salt
  • Nýmulinn svartur pipar eftir smekk
  • 1 tsk oregano
  • 1 tsk þurrkuð basilika

Ef þið notið hrærivél, þá er óhætt að henda öllu í skálina og hræra vel saman (ég tek nokkra snúninga með K-inu), en ef þið eigið ekki hrærivél mæli ég með að setja fiskhakkið í skál og gera holu í miðjuna og setja þar egg, mjólk, hveiti, kartöflumjöl, lauka og krydd og hræra vel saman. Mótið bollur með skeið (ég nota ískúluskeið) og steikið upp úr smjörlíki á meðalháum hita. Raðið bollunum í eldfast mót og setjið inn í ofn á 170° á meðan þið sjóðið hrísgrjón og útbúið karrísósu.

Karrísósa

  • 3 msk smjör
  • 3 msk hveiti
  • 2 msk karrí
  • 3 dl rjómi
  • 2 dl mjólk
  • 2 kjúklingateningar
  • Sojasósa eftir smekk

Bræðið smjör í potti og hrærið hveiti og karrí saman við. Bætið þá vökvanum út í, ásamt kjúklingateningum. Látið suðuna koma upp og smakkið til með sojasósu.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: